
Leiðbeiningar fylgja -
Hjálpartexti í tæki
Leiðbeiningar í tækinu lýsa hvernig á að nota það.
Þegar forrit er opið skaltu velja
Valkostir
>
Hjálp
til
að skoða hjálpartexta sem tengist því sem uppi er á
skjánum. Til að opna hjálpartextann á aðalvalmyndinni
skaltu velja
Verkfæri
>
Hjálparforrit
>
Hjálp
og
viðkomandi forrit.
Í lok hvers hjálpartexta eru tenglar að svipuðu efni.
Hægt er að breyta leturstærðinni til að auðveldara sé
að lesa leiðbeiningarnar. Ef smellt er á undirstrikað orð
birtist stutt útskýring. Í hjálpartextanum eru
eftirfarandi vísar notaðir: sýnir tengil að svipuðu
efni. sýnir tengil að forritinu sem fjallað er um. Hægt
er að skipta á milli opins forrits og hjálpartexta þess
með því að halda inni
takkanum eða velja tengilinn
að forritinu ( ).
Ábending: Til að setja Hjálpina á
aðalvalmyndina skaltu velja
Verkfæri
>
Hjálparforrit
, auðkenna
Hjálp
og velja
Valkostir
>
Færa í möppu
og aðalvalmyndina.