Nokia N85 - Lykilorð

background image

Lykilorð

Hafðu samband við þjónustuveituna þína ef þú gleymir

einhverjum af þessum aðgangsnúmerum.

PIN-númer (Personal identification

number) — Númerið hindrar að SIM-kortið sé notað

í leyfisleysi. PIN-númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir

yfirleitt með SIM-kortinu. Þegar PIN-númerið er

slegið rangt inn þrisvar sinnum er númerinu lokað

og þá þarf að slá inn PUK-númerið til að opna það.

UPIN-númer — Númerið kann að fylgja með USIM-

kortinu. USIM-kortið er endurbætt gerð SIM-korts til

að nota í UMTS-farsímum.

PIN2-númer — Númerið (4 til 8 tölustafir) fylgir

sumum SIM-kortum og er nauðsynlegt til að geta

notað suma valkosti tækisins.

Læsingarkóði (einnig kallaður

öryggisnúmer) — Læsingarnúmerið hindrar að

tækið sé notað í leyfisleysi. Hægt er að búa til og

breyta númerinu og láta tækið biðja um númerið.

Haltu nýja númerinu leyndu og á öruggum stað fjarri

tækinu. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst

þarftu að leita til þjónustuaðila og e.t.v. greiða

viðbótargjald. Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia

Care þjónustuveitu eða söluaðilanum.

PUK-númer (personal unblocking key) og PUK2-

númer — Þetta númer (8 tölustafir) er nauðsynlegt

til að breyta PIN-númeri eða PIN2-númeri sem hefur

verið lokað. Ef númerin fylgja ekki með SIM-kortinu

skaltu hafa samband við símafyrirtækið sem lét þig

fá SIM-kortið.

UPUK-númer — Þetta númer (8 tölustafir) er

nauðsynlegt til að breyta lokuðu UPIN-númeri. Ef

númerið fylgir ekki með USIM-kortinu skaltu hafa

samband við símafyrirtækið sem lét þig fá USIM-

kortið.

17

Hj

álp