Nokia N85 - Raddstýrð hringing

background image

Raddstýrð hringing

Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki

á rödd notandans þannig að ekki þarf að taka upp

raddmerki áður en hann notar þær. Tækið býr til

raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber það

raddmerki sem notandinn segir saman við þær.

Raddkennslin í tækinu laga sig að rödd aðalnotandans

til að líklegra sé að tækið beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið eða gælunafnið sem

er vistað á tengiliðarspjaldinu. Til að hlusta á tilbúna

122

Hr

ingt úr tækinu

background image

raddmerkið skaltu opna tengiliðaspjald og velja

Valkostir

>

Um raddmerki

>

Spila raddmerki

.

Hringt með raddmerki

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið

erfið í hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því

ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar

aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í

notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram

raddmerkið.

1.

Haltu inni hægri valtakkanum í biðstöðu til að hefja

raddstýrða hringingu. Ef samhæft höfuðtól með

höfuðtólstakka er notað skaltu halda honum inni til

að hefja raddstýrða hringingu.

2.

Stutt hljóðmerki heyrist og textinn

Tala nú

birtist.

Berðu skýrt fram nafnið eða gælunafnið sem er

vistað á tengiliðarspjaldinu.

3.

Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því

tungumáli sem er valið og birtir nafnið og

símanúmerið. Ef þú vilt ekki hringja í þann tengilið

skaltu velja

Næsta

innan 2,5 sekúndna til að skoða

aðrar niðurstöður í lista eða

Hætta

til að hætta við

raddstýrða hringingu.

Ef nokkur númer eru vistuð undir nafninu velur tækið

sjálfgefna númerið, hafi það verið tilgreint. Ef ekki, þá

velur tækið fyrsta tiltæka númerið á tengiliðarspjaldi.