Venjuleg símtöl
1.
Sláðu inn símanúmerið í biðstöðu, þ.m.t.
svæðisnúmerið. Tölustaf er eytt með því að ýta á
C .
Ýttu tvisvar sinnum á * til að fá fram + merkið ef þú
vilt hringja til útlanda (kemur í stað alþjóðlega
svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið,
svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og svo
símanúmerið.
2.
Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
3.
Ýttu á hætta-takkann til að slíta símtali (eða hætta
við að hringja).
Það að ýta á hættatakkann lýkur alltaf símtali,
jafnvel þó svo að annað forrit sé opið.
Til að hringja úr Tengiliðum ýtirðu á
og velur
Tengiliðir
. Veldu nafnið eða sláðu fyrstu stafi þess inn
í leitarreitinn. Ýttu á hringitakkann til að hringja í
tengiliðinn. Ef þú hefur vistað nokkur númer fyrir
tengilið skaltu velja tiltekna númerið af listanum og ýta
á hringitakkann.