Nokia N85 - Finna stað

background image

Finna stað

Hægt er að leita að áhugaverðum stað eftir lykilorði

með því að slá inn heiti staðarins eða tiltekið lykilorð í

leitarreitinn á aðalskjánum og velja

Leita

.

Til að setja inn heimilisfang úr

tengiliðaupplýsingunum velurðu

Valkostir

>

Velja úr

tengiliðum

.

Hægt er að nota staðsetningu á kortinu, sem til dæmis

upphafsstað fyrir leit í næsta nágrenni eða til að gera

leiðaráætlun, sjá upplýsingar um hana eða hefja

leiðsögu (sérþjónusta) með því að ýta á skruntakkann

og velja tiltekinn valkost.
Til að vafra um áhugaverða staði eftir flokkum á

svæðinu skaltu velja

Valkostir

>

Leita

og flokk. Slá

verður inn borg og land ef leita á eftir heimilisfangi.

Einnig er hægt að nota heimilisfang sem vistað hefur

verið á tengiliðaspjaldi í Tengiliðum.
Til að vista stað sem uppáhaldsstað skaltu ýta á

skruntakkann á viðkomandi stað og velja

Bæta við

Staðina mína

, slá inn heiti staðar og velja

Í lagi

. Einnig

er hægt að vista staðinn í leið eða í safni. Til að skoða

vistaða staði velurðu

Valkostir

>

Uppáhalds

>

Staðirnir mínir

.

Til að senda vistaðan stað í samhæfa tölvu skaltu ýta á

skruntakkann á staðaskjánum og velja

Senda

. Ef

staður er sendur í textaskilaboðum er upplýsingunum

umbreytt í venjulegan texta.

Þegar taka á skjámynd af staðnum skaltu velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Vista skjámynd korts

.

Skjámyndin eru vistuð í Myndum. Til að senda

skjámyndina opnarðu Myndir og velur þann valkost að

senda, á tækjastikunni eða á valmyndinni, og síðan

aðferðina.
Til að skoða vafrayfirlitið, staði sem þú hefur skoðað á

korti, og leiðir og söfn sem þú hefur búið til, velurðu

Valkostir

>

Uppáhalds

og tiltekinn valkost.

Leiðaráætlun

Til að gera leiðaráætlun til áfangastaðar flettirðu að

tiltekna áfangastaðnum, ýtir á skruntakkann og velur

Bæta við leið

. Þá er staðnum bætt inn í

leiðaráætlunina.
Til að bæta fleiri stöðum inn í leiðina velurðu

Valkostir

>

Bæta við leiðarpunkti

. Fyrsti

áningastaður sem þú velur er upphafsstaðurinn. Til að

breyta röð áningarstaða skaltu ýta á skruntakkann og

velja

Færa

.