Myndir og myndskeið skoðuð
Ýttu á
, veldu
Myndir
og eitt eftirfarandi atriða:
●
Allar
— Skoða allar myndir og hreyfimyndir.
●
Teknar
— Skoða myndir og myndskeið sem tekin
hafa verið með myndavél tækisins.
●
Niðurhal
— Skoða myndskeið sem hlaðið hefur
verið niður og myndskeið sem eru vistuð í
Kvikmyndabankanum.
Einnig er hægt að taka við myndum og myndskeiðum
í margmiðlunarskilaboðum, sem viðhengjum í
tölvupósti eða um Bluetooth. Til að geta skoðað
móttekna mynd eða myndskeið í Myndum þarftu fyrst
að vista það.
Mynda- og
hreyfimyndaskrár eru
í lykkju og þeim er
raðað eftir
dagsetningu og tíma.
Fjöldi skránna er
sýndur. Flettu til
hægri eða vinstri til að
skoða skrárnar eina af
annarri. Flettu upp eða niður til að skoða skrár í hópum.
85
Myndir
Ef Navi-hjólið er aftur á móti virkt rennirðu fingrinum
eftir brún skruntakkans til að fletta í skrám.
Skrá er opnuð með því að ýta á skruntakkann. Þegar
mynd er opnuð skaltu ýta á aðdráttartakkana undir
rennilokinu til að auka aðdráttinn. Aðdráttarhlutfallið
er ekki vistað til frambúðar.
Til að breyta myndskeiði eða mynd skaltu velja
Valkostir
>
Breyta
.
Sjá „Myndum breytt“, bls. 89.
Til að sjá hvar mynd sem merkt er með var tekin
skaltu velja
Valkostir
>
Sýna á korti
.
Til að prenta út myndirnar á samhæfum prentara eða
vista þær á samhæfu minniskorti (ef það er í tækinu)
til prentunar skaltu velja
Valkostir
>
Prenta
.
Sjá
„Myndprentun“, bls. 91.
Til að flytja myndir í albúm
þannig að hægt sé að prenta þær síðar skaltu velja
Valkostir
>
Setja inn í albúmPrenta seinna
.