Nokia N85 -  Samnýting mynda og myndskeiða á netinu  

background image

myndskeiða á netinu

Hægt er að samnýta myndir og myndskeið í samhæfum

albúmum á netinu, á bloggsíðum eða í annarri

samnýtingarþjónustu á netinu. Hægt er að hlaða upp

efni, vista færslur í vinnslu sem drög og halda áfram

síðar, og skoða innihald albúmsins. Það fer eftir

þjónustuveitunni hvaða tegundir efnis eru studdar.
Til að geta samnýtt myndir og myndskeið á netinu

þarftu að vera í áskrift hjá samnýtingarþjónustu.

Yfirleitt er hægt að gerast áskrifandi að slíkri þjónustu

á vefsíðu þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan gefur

nánari upplýsingar.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um

farsímakerfi þjónustuveitunnar, ef þessi þjónusta er

notuð. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá

þjónustuveitum.
Mælt er með þráðlausri staðarnetstengingu.
Til að hlaða skrá úr Myndum upp í netþjónustu ýtirðu
á

og velur

Myndir

. Veldu albúm, flettu að skránni

sem óskað er eftir og veldu

Valkostir

>

Senda

>

Birta á vef

eða veldu skrána og á tækjastikunni.

Nánari upplýsingar um forritið og þjónustuveitur er að

finna á þjónustusíðum Nokia eða Nokia-síðunni í

heimalandi þínu.

92

Myndir