Nokia N85 - Spila og halda utan um leiki

background image

Spila og halda utan um leiki

Til að spila og halda utan um leikina sem hlaðið hefur

verið niður og eru uppsettir á tækinu skaltu velja

My

Games

. Leikjunum er raðað eftir þeim degi sem síðast

var spilað þar sem sá nýjasti er fyrstur.
Í Leikirnir mínir er að finna fimm gerðir af leikjum:

Heilir leikir — Þetta eru leikir sem þú hefur keypt

með fullu leyfi. Það gætu verið margar gerðir leyfa í

boði en það fer eftir leiknum og svæðinu þínu.

Leikir til prufu — Þetta eru heilar leikjaskrár sem þú

hefur aðgang að í aðeins takmarkaðan tíma eða sem

innihalda takmarkað efni. Þegar prufutíminn rennur

út verðurðu að kaupa leyfi til að opna fyrir allan

leikinn og halda áfram. Þessir leikir eru merktir með

prufuborða.

Leikir í sýnisútgáfu — Þetta eru minni hlutar leiksins

með aðeins takmarkaða eiginleika og leikstig.

Þessir leikir eru merktir með borða fyrir

sýnisútgáfur.

Alveg útrunnir — Þetta eru leikir sem þú hefur keypt

með takmörkuðu leyfi sem núna er útrunnið. Þessir

leikir eru merktir með klukku og ör.

Ekki til staðar — Þetta eru heilir leikir sem þú hefur

fjarlægt eða sem þú hefur hlaðið niður en

uppsetningunni á þeim var ekki lokið. Þessir leikir

birtast sem ekki til staðar í leikjalistanum. Einnig eru

leikir sem settir eru upp á minniskortið sýndir sem

ekki til staðar þegar minniskortið hefur verið

fjarlægt.

Ef aukaefni leiks hefur verið hlaðið niður en það hefur

ekki verið sett upp að fullu er grafík leiksins heldur ekki

til staðar og ekki verður hægt að spila leikinn fyrr en

aukaefni leiksins hefur verið sett upp.