Nokia N85 - Flett um síður

background image

Flett um síður

Smákort og yfirlit síðna hjálpar þér að fletta um

vefsíður sem innihalda mikið magn upplýsinga.
Þegar stillt er á smákort í stillingum vafrans og flett er

um stóra vefsíðu opnast smákortið og sýnir yfirlit yfir

vefsíðuna sem er opin.
Kveikt er á smákorti með því að velja

Valkostir

>

Stillingar

>

Almennar

>

Smákort

>

Kveikt

.

Flett er um smákort með því að fletta upp, niður, til

hægri eða vinstri. Hætt er að fletta þegar komið er að

réttum stað. Smákortið hverfur þá og staðurinn birtist.
Þegar verið er að skoða vefsíðu með miklu

upplýsingamagni er einnig hægt að nota

Yfirlit síðu

til að sjá hvers konar upplýsingar síðan inniheldur.
Ýttu á 8 til að birta yfirlit fyrir opna síðu. Til að finna

réttan stað á síðunni flettirðu upp, niður, til vinstri eða

hægri. Ýttu aftur á 8 til að súmma að og skoða tiltekinn

hluta síðunnar.