Nokia N85 - Nokia Myndefnisþjónusta

background image

Nokia Myndefnisþjónusta

Með Nokia Myndefnisþjónustunni (sérþjónusta) er

hægt að hlaða niður og straumspila myndskeið frá

mismunandi myndveitum með pakkagögnum eða um

þráðlaust staðarnet. Einnig er hægt að flytja

myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið og skoða þau í

Myndefnisþjónustunni.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um

farsímakerfi þjónustuveitunnar að nota aðgangsstaði

fyrir pakkagögn til að hlaða niður hreyfimyndum.

Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá

þjónustuveitum.
Tækið kann að vera með fyrirfram skilgreinda

þjónustu.
Þjónustuveitur geta ýmist boðið upp á ókeypis efni

sem og efni sem gjald er tekið fyrir. Kannaðu verðið hjá

þjónustunni eða þjónustuveitunni.