
Gagnatengingar og aðgangsstaðir
Tækið styður pakkagagnatengingar (sérþjónusta), líkt
og GPRS í GSM-símkerfi. Þegar tækið er notað í GSM- og
UMTS-símkerfum er hægt að hafa margar
gagnatengingar í gangi samtímis og aðgangsstaðir
geta deilt gagnatengingu. Í UMTS-símkerfinu er ekki
slökkt á gagnatengingu þegar símtal er í gangi.
Einnig er hægt að koma á gagnatengingu við þráðlaus
staðarnet. Aðeins er hægt að tengjast við einn
aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet í einu, en nokkur
forrit geta hins vegar notað sama aðgangsstaðinn.
Til að koma á gagnatengingu verður aðgangsstaður að
hafa verið valinn. Hægt er að tilgreina mismunandi
gerðir aðgangsstaða, líkt og:
●
MMS-aðgangsstað til að senda og taka við
margmiðlunarskilaboðum,
●
Internetaðgangsstað (IAP) til að senda og taka við
tölvupósti og tengjast við internetið
Upplýsingar um hvaða gerð aðgangsstaðar þarf að
nota fyrir tiltekna þjónustu fást hjá þjónustuveitu.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um
pakkagagnaþjónustu og áskrift að henni.