
Tónlistarspilari
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur
skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur
verið mjög mikill.
Tónlistarspilarinn styður skrár með endingunum AAC,
AAC+, eAAC+, MP3 og WMA. Tónlistarspilarinn styður þó
ekki öll skrársnið eða öll afbrigði skráarsniða.
Einnig er hægt að nota tónlistarspilarann til að hlusta
á netvarpsþátt (podcast). Netvarp er sú aðferð að flytja
hljóð- eða myndefni á internetinu með RSS eða Atom-
tækni í farsíma og tölvur.
Hægt er að flytja tónlist úr samhæfum tækjum yfir í
tækið.
Sjá „Flutningur tónlistar yfir í tækið“, bls. 63.