
Flutningur með Windows Media Player
Samstilling tónlistar getur verið mismunandi eftir því
hvaða útgáfa af Windows Media Player er notuð.
Nánari upplýsingar er að finna í viðkomandi
handbókum og hjálparforritum sem fylgja Windows
Media Player. Eftirfarandi upplýsingar gilda um
Windows Media Player 11.
Handvirk samstilling
Með handvirkri samstillingu er hægt að velja lög og
spilunarlista sem á að flytja, afrita eða eyða.
63
Tónli
starmappa

1.
Þegar búið er að tengja tækið við Windows Media
Player skaltu velja tækið í upplýsingastikunni til
hægri, ef fleiri en eitt tæki eru tengd.
2.
Í vinstri upplýsingastikunni geturðu flett í gegnum
þær tónlistarskrár í tölvunni sem þú vilt samstilla.
3.
Dragðu og slepptu lögum í Sync List hægra megin.
Upplýsingar um laust minni í tækinu eru fyrir ofan
samstillingarlistann .
4.
Til að eyða lögum eða plötum skaltu velja hlut á
Sync List , hægrismella og velja Remove from
list .
5.
Samstillingin er ræst með því að smella á Start
Sync .
Sjálfvirk samstilling
1.
Til að ræsa sjálfvirka samstillingu í Windows Media
Player smellirðu á flipann Sync , velur Nokia
Handset > Set Up Sync... og hakar í reitinn Sync
this device automatically .
2.
Veldu spilunarlistana sem á að samstilla sjálfvirkt í
rúðunni Available playlists og smelltu á Bæta
við .
Þeir hlutir sem voru valdir eru fluttir í rúðuna
Playlists to sync .
3.
Smelltu á Ljúka til að klára uppsetningu á sjálfvirkri
samstillingu.
Ef reiturinn Sync this device automatically er valinn
og tækið er tengt við tölvu uppfærist tónlistarsafnið
sjálfvirkt með þeim spilunarlistum sem valdir voru í
Windows Media Player. Ef enginn spilunarlisti hefur
verið valinn er allt tónlistasafn tölvunnar valið til
samstillingar. Ef það er of lítið minni í tækinu velur
Windows Media Player sjálfkrafa handvirka
samstillingu.
Til að stöðva sjálfvirka samstillingu smellirðu á flipann
Sync og velur Stop Sync to 'Nokia Handset' .