Nokia N85 - Um þráðlaus staðarnet

background image

Um þráðlaus staðarnet

Tækið getur fundið og tengst þráðlausum

staðarnetum. Á þráðlausu staðarneti er hægt að

tengjast við internetið og önnur samhæf tæki sem

styðja þráðlaust staðarnet.
Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarf eftirfarandi:

Þráðlaust staðarnet verður að vera tiltækt á

staðnum.

Tækið verður að vera tengt þráðlausa staðarnetinu.

Sum þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá

aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til að geta tengst

þeim.

Internetaðgangsstaður þarf að vera gerður fyrir

þráðlaust staðarnet. Notaðu aðgangsstaðinn fyrir

aðgerðir sem krefjast tengingar við internetið.

Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú

býrð til gagnatengingu með því að nota

netaðgangsstað. Þráðlausa staðarnetstengin er rofin

þegar þú lokar gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali

stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er

hægt að tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust

staðarnet í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað

sama internetaðgangsstaðinn.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet eða leyfa

slíkum aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar

aðgerðir eru notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku

og minnka endingartíma rafhlöðunnar.
Tækið þitt styður eftirtaldar í þráðlausu staðarneti:

IEEE 802.11b/g staðalinn

2,4 GHz virkni

WEP-dulkóðunarstaðall, Wi-Fi varinn aðgangur

(WPA/WPA2) og 802.1x sannvottunaraðferðir.

Aðeins er hægt að nota þessa valkosti ef símkerfið

styður þá.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr

36

Teng

in

ga

r

background image

hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum

þínum án heimildar.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt

fyrir að tækið sé í ótengdu sniði, ef það er í boði. Mundu

að fara að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú

kemur á og notar þráðlausa staðarnetstengingu.

Ábending: Til að sjá MAC-vistfangið sem

auðkennir tækið þitt skaltu slá inn

*#62209526# á heimaskjánum.