Nokia N85 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Hægt er að koma á þráðlausri tengingu við önnur

samhæf tæki, svo sem farsíma, tölvur, höfuðtól og

bílbúnað, með Bluetooth.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir,

myndskeið, tónlist, hljóðskrár og minnismiða, senda

skrár frá samhæfri tölvu og til að prenta myndir með

samhæfum prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota

útvarpsbylgjur til samskipta þurfa þau ekki að vera í

beinni sjónlínu hvert við annað. Þau þurfa þó að vera í

innan við 10 metra (33 feta) fjarlægð hvort frá öðru.

Truflanir geta orðið á tengingunni vegna hindrana líkt

og veggja eða annarra raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0

sem styður eftirfarandi snið: Generic Audio/Video

Distribution Profile, Advanced Audio Distribution

Profile, Audio/Video Remote Control Profile, Basic

Imaging Profile, Basic Printing Profile, Dial-up

Networking Profile, File Transfer Profile, Hands-Free

Profile, Headset Profile, Human Interface Device

Profile, Object Push Profile, SIM Access Profile,

Synchronization Profile, Serial Port Profile og

Phonebook Access Profile. Til að tryggja samvirkni milli

annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota

aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa

39

Teng

in

ga

r

background image

tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum

annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu

símans og draga úr endingu hennar.
Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst.