Nokia N85 - Ytri SIM-stilling

background image

Ytri SIM-stilling

Áður en hægt er að velja þetta verða tækin að vera

pöruð saman og kveikja þarf á pöruninni í hinu tækinu.

Við pörun skal nota 16 stafa aðgangskóða og stilla hitt

tækið á leyfilegt.
Til að nota ytri SIM-stillingu með samhæfum bílbúnaði

skaltu kveikja á Bluetooth og svo á ytri SIM-stillingu í

tækinu. Kveiktu á ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.
Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í tækinu birtist

Ytra

SIM

í biðstöðu. Slökkt er á tengingunni við þráðlausa

símkerfið, og það er gefið til kynna með í

sendistyrksvísinum. Þá er ekki hægt að nota þjónustu

SIM-kortsins eða valkosti þar sem tenging við símkerfið

er nauðsynleg.
Þegar ytri SIM-stilling hefur verið valin í þráðlausa

tækinu er aðeins hægt að hringja og svara símtölum

með samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d.

bílbúnaði). Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu

þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er

forritað í tækið. Til að hringja úr tækinu þarf fyrst að

slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið læst

skal fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því að ýta á rofann

og velja

Loka ytri SIM

.