Nokia N85 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald

Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem

fara þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar

hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns

vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra

rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja

rafhlöðuna og leyfa því að þorna alveg áður en

rafhlaðan er sett í það aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum

stöðum né geyma það þar. Færanlegu hlutirnir og

rafrænir hlutar þess geta skemmst.

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig

getur dregið úr endingu rafeindatækja, skemmt

rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið

hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki myndast

innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint

er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða

hrista það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri

rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga

eða sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest

hreyfanlega hluti tækisins og komið í veg fyrir að

þeir vinni rétt.

Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa

linsur, líkt og myndavélar-, fjarlægðarnema- og

ljósnemalinsur.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum

eða samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet,

breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt

tækið og kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um

senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin

er að halda, t.d. tengiliðum og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja

þannig hámarksafköst með því að slökkva á tækinu

og fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,

hleðslutækið eða aðra aukahluti. Ef tæki vinnur ekki

rétt skal fara með það til næsta viðurkennda

þjónustuaðila til lagfæringar.

171

Umhirða og viðhald