Nokia N85 - Losun

background image

Losun

Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á

vörunni, bæklingnum eða umbúðunum táknar að

fara verður með allan rafbúnað og

rafeindabúnað, rafhlöður og rafgeyma á sérstaka

staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi

krafa á við um Evrópusambandið og önnur svæði þar

sem sérstakir móttökustaðir eru til staðar. Hendið

þessum vörum ekki með heimilisúrgangi.
Það að fara með vöruna á móttökustað minnkar losun

óflokkaðs sorps og hjálpar til við endurvinnslu. Nánari

upplýsingar um safnstaði eru veittar hjá söluaðilum,

viðkomandi yfirvöldum á staðnum, framleiðslueftirliti

í viðkomandi landi eða umboðsaðila Nokia á staðnum.

Upplýsingar um Eco-yfirlýsingu vörunnar og

leiðbeiningar um skil á úreltum vörum er að finna í

landaupplýsingum á www.nokia.com.

172

Umhirða og viðhald