Nokia N85 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Upplýsingar um rafhlöðu og

hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta

tæki er ætlað til notkunar með BL-5K rafhlöðu. Tækið

er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-10, DC-6, DC-10. Hægt

er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð

sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar

tal- og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal

skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem

samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða

rafhlöðu með hleðslutækjum sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun

ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja getur valdið

eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra áhættu í för

með sér.
Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir

klónni sem er notuð. Gerð klónnar er auðkennt af einu

af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef

rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann

að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja

það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef

rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar

til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er

að hringja.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið

áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í

notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi

við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma

hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og

smátt ef hún er ekki í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu

frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða

kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með

heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa

tímabundið. Einkum hefur mikið frost takmarkandi

áhrif á rafhlöður.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í

rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar

málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni

veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á

rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á

rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar

vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup

milli skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni

eða hlutnum sem veldur tengingunni.

168

Upp

lýsinga

r um

rafhlöðu og hle

ðslutæki

background image

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta

sprungið. Rafhlöður geta einnig sprungið ef þær

skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við

staðbundin lög og reglugerðir. Skila skal þeim í

endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim

með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja,

afmynda, gata eða tæta rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má

vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða augu.

Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu

umsvifalaust með vatni, eða leita til læknis.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í

rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni

í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.
Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða

sprenghættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið eða

rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur

að rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til

þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að

nota hana.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.