Nokia N85 - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um

áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það

er hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af

útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur

mæla með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af

óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda

175

Viðbótaröryggisupplýsingar

background image

öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð

aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra

tækja er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption

Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum

ICNIRP, eru 2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á

hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar

í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af

mesta leyfða styrk á öllum mældum tíðnisviðum.

Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur verið

lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að

nota aðeins þann styrk sem þarf til að ná sambandi við

símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu

langt notandinn er frá grunnstöð. Samkvæmt

viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir

notkun tækisins við eyra 0,87 W/kg.
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að

SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg

milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu,

krafna og tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má

finna í upplýsingum um vörur á www.nokia.com.

176

Viðbótaröryggisupplýsingar