Nokia N85 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk

útvarpsbylgna (RF) við notkun annaðhvort í

hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að

minnsta kosti 1,5 sentimetri (5/8 tommur) frá

líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað

þegar tækið er borið á réttan hátt á líkamanum ætti

slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti

tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum

sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf

þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum

tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík

tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum

fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu

dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra

segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt

tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu

þurrkast út.